Hafa samband

Flóki Invest hvetur alla samstarfsaðila til að tileinka sér opin og heiðarleg samskipti.

Almennar fyrirspurnir
Fjölmiðlafyrirspurnir

Samskiptastefna Flóka Invest

Flóki Invest hvetur alla samstarfsaðila til að tileinka sér opin og heiðarleg samskipti.

Almennt

Flóki Invest einsetur sér að setja upplýsingar fram á skýran og gagnsæjan hátt. Við viljum að upplýsingar um starfsemina séu aðgengilegar og auðskiljanlegar og veiti fólki góða innsýn í starfssemi Flóka Invest og veiti skilning á hvaða ástæður liggja að baki þeim ákvörðunum sem við tökum.

Flóki Invest kemur upplýsingum um starfsemi á framfæri í gegnum vefsíðu sína, í samtölum, á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum eftir því hvað við á hverju sinni.

Flóki Invest hvetur alla samstarfsaðila til að tileinka sér opin og heiðarleg samskipti.

Starfsfólk

Við hvetjum starfsfólk Flóka Invest til hreinskiptinna samskipta innan fyrirtækis og utan. Flóki Invest stuðlar að heiðarlegum samskiptum á vinnustaðnum og starfsfólk sýnir hvort öðru virðingu.

Flóki Invest hefur frumkvæði að samskiptum við aðra og svarar öllum fyrirspurnum hratt og vel. Starfsfólk Flóka Invest velur sér jákvætt og uppbyggilegt orðfæri og viðhorf í sínum samskiptum. Starfsfólk kemur heiðarlega fram við aðra og sýnir virðingu og auðmýkt.

Fjárfestar

Flóki Invest vill að fjárfestingar félagsins betrumbæti samfélagið. Við leggjum áherslu á gagnsæja og opna upplýsingagjöf. Flóki Invest kemur hreint fram og gerir grein fyrir sínum fjárfestingum og eignarhaldi.

Flóki Invest vill tryggja djúpan skilning allra á rekstri og árangri fyrirtækisins. Við leggjum okkur fram um að skýra stefnu og framtíðarsýn Flóka Invest, áskoranir og tækifæri.

Flóki Invest miðlar upplýsingum úr rekstri félagsins til samstarfsfólks og samstarfsaðila eins fljótt og mögulegt er.

Fjölmiðlar

Flóki Invest hvetur til umfjöllunar um félagið og veitir fjölmiðlum alla þá aðstoð og hjálp sem þeir þurfa. Við svörum öllum fyrirspurnum sem berast að því marki sem félaginu er heimilt.

Flóki Invest stefnir að því að segja frá starfsemi félagsins og félaga í eigu Flóka Invest á vefsíðu sinni og eftir atvikum senda fréttatilkynningar þess efnis til fjölmiðla. Þetta gætu verið til dæmis frásagnir af framþróun og nýjungum, af verkefnum félagsins, af starfsfólki þess eða þátttöku Flóka Invest í samfélags- og/eða félagslega mikilvægum verkefnum.

Flóki Invest fer í einu og öllu eftir gildandi lögum um persónuvernd og upplýsingamiðlun.