Íbúðabygging, blár himinn og hvít ský í bakgrunni

Flóki er stór hluthafi Þorpsins vistfélags sem hefur það að markmiði að þróa og byggja hagkvæmar og vistvænar fasteignir til leigu eða sölu fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

thorpidvistfelag.is

Við byggingu íbúðanna er mikil áhersla lögð á virka þátttöku íbúanna í samfélaginu, sérstaklega hvað varðar umhverfismál. Að auki gerir Þorpið fólki kleift að eignast þak yfir höfuðið án þess að þurfa að ráðstafa nær öllum framtíðartekjum sínum til margra áratuga í húsnæði.

Eitt af verkefnum Þorpsins er ný byggð í Gufunesi, íbúðir byggðar með það sjónarmið að bjóða upp á hagkvæmt úrræði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur. Mikil áhersla er lögð á virka þátttöku íbúa í samfélaginu, sérstaklega hvað varðar umhverfismál. Göngustígar tengja saman garða og torg og aðgengi allra er tryggt. Leikvöllur, garðrými og matjurtagarðar setja svip sinn á þetta framúrstefnulega hverfi, ásamt glæsilegu útsýni yfir Geldinganes og Viðey.

Þátttaka íbúa í samfélaginu er strax farin að sýna sig en í mars 2021 var efnt til keppni um tillögur að nöfnum fyrir húsin fimm. Hugmyndin sem bar sigur úr bíti var „nöfn eftir norrænum gyðjum“. Húsin heita því Eirarhús, Friggjarhús, Freyjuhús, Nönnuhús og Sifjarhús.

Önnur verkefni Þorpsins

Ólíkt byggingunum í Gufunesi, sem höfða til ungs fólks sem er að stíga sín fyrstu skref á fasteignamarkaði, vinnur Þorpið vistfélag einnig að uppbyggingu á Bræðraborgarstíg 1-3 í Reykjavík. Þar á að bjóða upp á húsnæði fyrir eldri konur sem kjósa að búa einar, með möguleika á að nota ýmis sameiginleg rými, þar sem félagsskapur er í boði frá öðrum konum sem hafa sömu lífsgildi. Verkefnið nefnist „Baba Yaga-systrahús“ og er hugmyndin dregin frá kjarna samfélögum í París. Í Baba Yaga-systrahúsinu verður sjálfbærni og samstaða einnig höfð í fyrirrúmi, líkt og í Gufunesi.